Eniga meniga

EnigaHér gefur að líta eina hugmynd enn að nýju skjaldarmerki með landvættina horfandi forviða á það sem ég taldi vera gullkálfinn sjálfan, eða alikálf kerfisins eins og ég hef líka kosið að kalla hann einhversstaðar.

En, segið ekki, að Silfur Egils verði manni ekki að innblástri, því að ekki nóg með það að ég endilega vilji koma þessari mynd á framfæri. Heldur leiddi ungur maður sem kallaður var viðskiptasiðfræðingur mér fyrir sjónir í Silfrinu að ekki nóg með það að gullkálfurinn sjálfur sitji í Seðlabankanum, heldur gæti þetta bara verið Mammon sjálfur.

Nú, ef það er rétt að Mammon gerir það að verkum að menn halda sig guð, og geti gert það sem þeim sýnist, þá er allavega Davíð þeim ríku góð fyrirmynd í þeim efnum, því eins og hann segir hér sit ég og get ekki annað.


Ísland, fyrirmynd annarra ríkja

Eins og endranær verður Ísland fyrirmynd annarra ríkja og þjóða, viljandi eða óviljandi, af undarlegum mannkostum eða landkostum eða hvorttveggja.

Sérstaða landsins er allnokkur og ekki allra að herma eftir henni, en skemmst er að muna að íslendingar fóru fram á og fengu viðurkenningu á 200 sjómílna landhelgi, en önnur ríki fylgdu eftir sem ekkert væri.

Ísland gaf öllum puttann þegar það í miðju stríði gerðist sjálfstætt lýðveldi, en fjöldi ríkja fylgdu í kjölfarið, Ísrael 1948 og Indland líka 1948. Þau ríki lentu bæði reyndar í skelfilegum styrjöldum í framhaldið.

Það virðist því vera að sú staðreynd að landið hefur ótvíræð landamæri og íslenska lýðveldið ótvíræðan tilverurétt geri að við getum gefið stórveldum puttann enn aftur.


mbl.is Gott fordæmi fyrir fátæk ríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn ætti að halda kj..............

Bj. B. ætti að halda kj., og sjá sóma sinn í að þegja, þegar mikilvægt er að þjóðin sýni samstöðu. Alvarlegar blammeringar á þíngi eru engum til gagns í þessari stöðu, og ég spyr hvort þessi maður hafi ekki öðrum hnöppum að hneppa heldur en að þvæla í ræðustól? Hefur hann ekki stórfyrirtæki að stjórna. Sama er nú að segja um Einar K. sem ætti nú að halda kj. líka og gera það sem hann kann best, að veiða friðuð dýr. Eða þá Gulli Þ., sem situr og gapir í þingsal! Hefur hann ekki huggulegrii konu að sinna, eða eitthvað gagnlegt að gera?
mbl.is Stórskaðar hagsmuni Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Étið það sem úti frýs

Gamli leiðsöguskólinn minn setti hnifinn í bakið á þeim sem þegar eru starfandi með því að hraðsjóða leiðsögumenn fyrir sumarið. Þetta fólk sem á að geta leiðsagt um Reykjavík og nærsveitir er á lægsta taxta að fara gullhringinn, sem hefur verið aðaltekjulind þeirra sem eru í þessu að jafnaði.

Í öðrum löndum er boðið upp á svæðisleiðsögn sem framhaldsnám eða serhæfing ofan á sjálft grunnnámið, en hér er boðið upp á hraðnámskeið: http://mk.is/index.php?option=com_content&task=view&id=629&Itemid=180

Þetta er hin dæmigerða íslenska leið, þar sem þeir sem hæst láta ná sínu fram, og þar sem hið opinbera og fagfélög þjónka við atvinnurekendur í staðinn fyrir umboðsaðila sína fagfólkið, og þar sem hugsunin er og hefur alltaf verið að allir aðrir en þú sjálfur geti bara étið það sem úti frýs.


Sakna Rei-málsins

Ég minnist færslu minnar "Skuldlaus í skítalykt" þegar ég sé í Fréttablaðinu að Jónmundur eigi að taka við framkvæmdastjórastólnum í Sjálfstæðisflokknum.

Ég held það megi segja að þeir séu í ýmsum skítamálum sjálfstæðismenn í nærsveitum, en í Fréttablaðinu segir líka HB að hún hafi lært að brosa og er það vel.

Eitthvað sakna ég líka REI-málsins, miðað við Icesave, þóað ég geti ekki beinlínis sagt að ég hafi skilið það heldur.

Er ekki bara þægilegra að líta á Icesavereikninginn sem greiðslu sem þjóðin þarf að inna af hendi eftir 17 ára óstjórn sjálfstæðisflokksins, frekar en bara eithvað góðærisrugl. 15ár til að borga upp 17 hljómar ekki eins illa, 2 árin sem vantar upp á getum við litið á sem sumarfríi, svona eins og refsiföngum er líka ætlað sumarfrí (er ekki fangelsisárið bara 8 mánuðir?) Já, í skuldafangelsi fyrir óráðsíu skal þjóðin, með skolpræsin í lagi í Reykjavík að minnsta kosti, en á meðan flagga Sjf-menn Jónmundi og HB mundar veiðistöngina.


Hellisheiðin slæm

Akkúrat í augnablikinu mundi ég segja að vegarkafli á háheiðinni sé orðin það slæmur að hætta stafar af honum.

Að lokum vil ég biðja um að þungaflutningum verði aftur komið út á sjó!


mbl.is Hætt við öll útboð í vegagerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fólkið kaus brennuvarginn Barabbas!

Alþingiskosningarnar 2003: Framsóknarflokkur 17.7 %; sjálfstæðisflokkur 33,7 %
Alþingiskosningarnar 2007: Framsóknarflokkur 11.7 %; Sjálfstæðisflokkur 36, 6%
Þetta var kosningasigur hjá Sjf. 2007, en óskiljanleg niðurstaða hjá Frsf. 2003
Er nema von að þetta fólk taldi sé allar leiðir færar!?
2003 náði framsókn vopnum sínum með undraverðum hætti (fór úr 7% í skoðanakönnunum í 17%) með ofboðslegri auglýsingaherferð og extreme makeover á Halldór, auk loforða um 90% húsnæðislán náðu þeir að höfða til unga fólksins. Afhroðið sem þeir áttu inn lét því bíða eftir sér til 2007 illu heilli fyrir land og þjóð.
Kosningasigur sjf 2007 var ekki síður með ólikindum, þrátt fyrir16 ára stjórnarsetu. Fólk var hins vegar farið að efast um að góðærið gæti varað, og héldu að áframhaldið væri undir setu sjálfstæðisflokksins komið, en þeir ráku hræðsluáróður og hömruðu á hugtakinu stöðugleiki.
Afleiðingarnar þarf ekki að rekja, en það þarf vart vitnanna við að víst kaus fólk þetta yfir sig, og var ginnkeypt fyrir gylliboðum.

Hagsmunapólitík haldið áfram

Getur verið að þeir sem mest halda fram dómstólaleiðinni í svk. Icesavemáli séu hræddir við rannsókn hér heima og vilja drepa á dreif málinu með því að benda á útlönd í stað þess að finna sökina hjá sjálfum sér. Eða er þetta óþarfa paranoja?

Fóru ekki miljarðar til Kaupþings rétt fyrir hrun?

Mig langar til að spyrja almenning um þetta, hvort einhver þekkir til upphæðar sem hafi farið úr seðlabankanum til Kaupþings rétt áður en bankinn var yfirtekinn.

Löggan beitti óhóflegu ofbeldi

Þó að lögreglumenn hafi vissulega samúð mína vegna atvinnu sinnar, er ekki þar með sagt að hún sé hafin yfir gagnrýni. Fólk snerist til varnar lögreglunni eftir að eiginkona eins þeirra hafði komið fram í sjónvarpi og lýst afleiðingum óeirðanna á eiginmann hennar og fjölskyldulíf. Þannig var það persónulegt, að fólk ákvað að taka höndum saman um að fordæma ofbeldi og minnka líkur á því, með því að sjálft slá skjaldborg um Alþingishúsið og má kannski segja að það hafi verið ljósi punkturinn í þessu öllu og eiginlega eina vel heppnaða einstaka aðgerð mótmælenda.

Sjálfur varð ég vitni að óhóflegri beitingu ofbeldis og ofsa sem var óþarfur, þegar til dæmis Ford transit með handteknum einstaklingum var ekið af stað frá hliðarbyggingu þinghússins á ofsahraða. Mitt mat á aðstæðum þar var að farið var fram af fullkomlegu offorsi og ekkert í aðstæðum sem réttlætti fullkomið ofbeldi, þegar m.a. einn maður var handleggsbrotinn og aðrir fengu úða beint í augun á ca. 50cm færi. Þetta stangast líka fullkomlega á við það sem Stefán stutti stöðvarstjóri Eiríksson sagð síðar í Kastljósviðtali að þannig væri piparúðunum ekki beitt, en hann hefur ekki vitað hvað hann var að tala um.


mbl.is Piparúði á þrotum þegar átökin náðu hámarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband